Nú þegar olía hefur hækkað svo sem raun ber vitni er augljóslega eftirsóknarvert að eiga traktor sem eyðir litlu.
Fákur er dráttarvél sem er einföld, eyðslugrönn, umhverfisvæn, sterkbyggð, lipur og áreiðanleg.
12 mánaða ábyrgð, fullkomin varahlutaþjónusta og viðurkennd þjónustuverkstæði á þremur stöðum á landinu.
Shire-traktorarar eru bresk hönnun, framleiddir í Kína. Á Íslandi munu þeir heita Fákar (et. Fákur), en framleiðendurnir vilja gjarnan að innlent nafn sé notað á hverjum stað og með vísun í, að Shire er þekktur dráttarhestur í Wales.
Þrátt fyrir að vera framleiddir í Kína standast Fákarnir alla staðla og kröfur, sem gerðar eru í Evrópu, s.s. varðandi öryggis- og mengunarbúnað.
Fákur er einfaldlega frábær kostur fyrir bændur, hestamenn, garðyrkjufólk, sumarhúsaeigendur, verktaka o.fl |